top of page
Metnaður Ánægja Samvinna Ábyrgð

Grunnskóli
Grundarfjarðar
Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar
Foreldrafélagið sér um ýmsar uppákomur og skemmtanir fyrir nemendur yfir skólaárið. Stjórnin er kosin úr hópi bekkjarfulltrúa sem valdir eru eftir ákveðinni reglu að hausti. Kosningin fer fram á aðalfundi félagsins sem haldinn er í október ár hvert. Þessir bekkjarfulltrúar aðstoða einnig við ýmsar uppákomur yfir veturinn. Það má nefna að félagið hefur séð um þrettándagleði, skipulagt leikhúsferð fyrir 7. bekkinga ár hvert, séð um kaffisölu á skólaslitum og til skiptis hafa foreldrafélög skólanna á norðanverðu Snæfellsnesi staðið fyrir Nesballi fyrir unglingastig. Foreldrafélagið vinnur einnig að eflingu samstarfs milli heimilis og skóla. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans.
VIÐBURÐIR
bottom of page