top of page
NEMENDAVERNDARRÁÐ GRUNNSKÓLA GRUNDARFJARÐAR

 

 

Starfs- og verklagsreglur 

 

Nemendaverndarráð starfar samkvæmt Reglugerð um nemendaverndarráð nr. 584/2010. 

 

Skipan ráðsins, starfshættir og tilvísun til þess fylgja V. kafla reglugerðarinnar þar sem segir: 

 

 

V. KAFLI 

 

Starfsemi nemendaverndarráða grunnskóla. 

 

 

16. gr. 

 

Samræmingarhlutverk skólastjóra grunnskóla. 

 

Skólastjóri grunnskóla skal samræma innan hvers grunnskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra 

 

nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, náms- og starfsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun 

 

nemendaverndarráðs skv. 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. 

 

 

Jafnframt skal skólastjóri grunnskóla stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og 

 

barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eða nemendahópa eftir því sem þurfa þykir. 
 

 

17. gr. 

 

Hlutverk nemendaverndarráðs. 

 

Hlutverk nemendaverndarráðs er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi 

 

skólaheilsugæslu, náms- og starfsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar um 

 

framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Samstarfið getur verið bæði vegna einstakra 

 

nemenda og forvarnarstarfs. 
 

 

18. gr. 

 

Skipan nemendaverndarráðs. 

 

Skólastjóri skipar nemendaverndarráð til eins árs í senn og er ábyrgur fyrir starfrækslu ráðsins sem skal 

 

taka mið af aðstæðum í hverjum skóla. Skólastjóri eða fulltrúi hans stýrir starfi nemendaverndarráðs. 

 

 

Í nemendaverndarráði grunnskóla eiga sæti skólastjóri og/eða fulltrúi sem hann tilnefnir, 

 

umsjónaraðili kennslu nemenda með sérþarfir, fulltrúi skólaheilsugæslu, fulltrúi sérfræðiþjónustu 

 

sveitarfélags og náms- og starfsráðgjafi. Einnig geta fulltrúar frá félagsþjónustu sveitarfélags og 

 

barnaverndaryfirvöldum tekið þátt í starfi nemendaverndarráðs þegar tilefni er til. 

 

 

19. gr. 

 

Vísun mála til nemendaverndarráðs. 

 

Fái nemandi ekki fullnægjandi aðstoð vegna fötlunar, sjúkdóms eða námslegra, félagslegra eða 

 

tilfinningalegra erfiðleika skal umsjónarkennari vísa málinu skriflega til nemendaverndarráðs. 

 

 

Fulltrúar í nemendaverndarráði geta haft frumkvæði að því að mál einstakra nemenda séu tekin 

 

upp í ráðinu. Starfsfólk skóla, foreldrar, nemendur og fulltrúar sérfræðiþjónustu skólans geta óskað eftir 

 

því við skólastjóra eða fulltrúa hans í nemendaverndarráði að mál einstakra nemenda eða nemendahópa 

 

verði tekin fyrir í ráðinu. 

 

 

Ávallt skal upplýsa foreldra um að máli barna þeirra sé formlega vísað til skólastjóra eða 

 

nemendaverndarráðs og leita eftir samstarfi við foreldra um lausn mála eftir því sem framast er kostur. 

 

Nemendaverndarráð skal taka fyrir málefni sem vísað er til ráðsins eins fljótt og auðið er. 

 

 

20. gr. 

 

Starfshættir nemendaverndarráðs

 

Nemendaverndarráð fjallar um sérstök úrræði fyrir einstaka nemendur eða nemendahópa sem lögð hafa 

 

verið fyrir ráðið. Ráðið metur hvaða viðbótarupplýsinga er þörf og boðar á sinn fund umsjónarkennara og 

 

foreldra svo og aðra aðila sem tengjast málinu ef þörf krefur. 

 

 

Þegar ákvörðun hefur verið tekin um nauðsynlegar ráðstafanir, umbætur eða aðgerðir getur 

 

skólastjóri falið aðilum innan ráðsins að fylgja málinu eftir ef nauðsyn krefur. 

 

 

Fara skal með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli um þagnarskyldu og gildandi lög um 

 

persónuvernd. Þeir sem sitja í nemendaverndarráði skulu gæta þagmælsku um atriði sem varða einka- og 

 

fjárhagsmálefni einstaklinga sem þeir fá vitneskju um og leynt eiga að fara. Þagnarskylda nær ekki til atvika 

 

sem ber að tilkynna um lögum samkvæmt. Þagnarskylda helst þótt viðkomandi láti af störfum. 

 

 

Nemendaverndarráð setur sér starfs- og verklagsreglur þar sem m.a. er kveðið á um tíðni funda 

 

ráðsins. Halda skal fund í nemendaverndarráði ef a.m.k. tveir fulltrúar í ráðinu óska þess. Fundir skulu 

 

færðir til bókar. 

 

 

Skipan nemendaverndarráðs á hverju skólaári skal skipað

 

Skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, fulltrúi félags- og skólaþjónustunnar og náms-

 

og starfsráðgjafi. 

 

 

Fundartími 

 

Nemendaverndarráð fundar reglulega eða þegar þörf er á. 

 

 

Vísun mála til nemendaverndarráðs 

 

Umsjónakennari skal vísa málefni nemenda skriflega til nemendaverndarráðs á þar til gerð eyðublöð. Þá

 

geta fulltrúar í nemendaverndarráði haft frumkvæði að því að mál einstakra nemenda séu tekin upp. 

 

Starfsfólk skóla, foreldrar, nemendur og fulltrúar sérfræðiþjónustu skólans geta einnig óskað eftir því við 

 

skólastjóra eða fulltrúa hans í nemendaverndarráði að mál einstakra nemenda eða nemendahópa verði 

 

tekin fyrir í ráðinu. Nota skal tilvísunarblað. 

 

 

Ávallt skal upplýsa foreldra um að máli barna þeirra sé formlega vísað til skólastjóra eða 

 

nemendaverndarráðs og leita eftir samstarfi við foreldra um lausn mála eftir því sem framast er kostur. 

 

Tilkynning skal berast foreldrum/forráðamönnum með, a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara.

VIÐBURÐIR

bottom of page