top of page
Laus störf í Grunnskóla Grundarfjarðar
 

 

 

Grunnskóli Grundarfjarðar auglýsir starf deildarstjóra leikskóladeildar 5 ára barna laust til umsóknar.

 
Starf deildarstjóra leikskóladeildar 5 ára barna felst í vinnu að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara, þróun deildarinnar í samstarfi við aðra stjórnendur, þátttöku í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs, en mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum. Leikskóladeildin Eldhamrar er staðsett í Grunnskóla Grundarfjarðar. Um 100% starf er að ræða.  Starfið er laust frá 1. janúar eða eftir samkomulagi.
 
Menntunar- og hæfniskröfur:  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg • Áhugi á að vinna með börnum • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum • Frumkvæði í starfi • Góð íslenskukunnátta
 
Laun og starfskjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri, í síma 430 8550 eða á netfangi sigurdur@gfb.is.
Umsóknum ásamt starfsferilskrá skal skila www.grundarfjordur.is eða á netfangið sigurdur@gfb.is. 
 
Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2018.

VIÐBURÐIR

bottom of page