Nýjar tímasetningar
- helis6
- Jan 8, 2015
- 1 min read
Tímasetningar breyttust í skólanum á nýju ári. Skólinn byrjar á sama tíma kl. 8:10 og frímínútur eru kl. 9:30 - 9:50 og kl. 11:10 - 11:25. Hádegisverðarhlé er milli kl. 12:05 - 12:35 og nemendur í 1. - 4. bekk eru búin í skólanum kl. 13:15 alla daga nema föstudaga en þá er engin hádegismatur heldur eru þau búin í skólanum kl. 12:45. Þessar breytingar eru gerðar með hag nemenda í huga.
Nemendur borða núna allir í matsal á efri hæð skólans þar sem nýju felliborðin eru staðsett og eru nemendur ánægðir með þetta nýja fyrirkomulag. Kvenfélagið Gelym mér ei og Lionsklúbbur Grundarfjarðar gáfu skólanum sitt hvort felliborðið og skólinn fjárfesti í tveimur til viðbótar. Með tilkomu felliborðanna vonumst við til að skólabragur og samskipti styrkist.
Nemendum í 5. - 10. bekk býðst að nýta sér heimanámstíma í skólanum á fimmtudögum kl. 13:55 - 14:23 í stofu N2.
Comments