Fyrirlestur
- helis6
- Feb 9, 2015
- 1 min read
Fyrirlestur veður á morgun þriðjudag kl 17:00 í Grunskólanum
„Ber það sem eftir er:
Um sexting, hefndarklám og netið“ er fræðsla fyrir foreldra um öryggi barna í stafrænum samskiptum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu, en lögreglunni hefur reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu. Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga eykur á vandann. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Aðgangur er ókeypis og allir foreldrar eru hvattir til að mæta á fyrirlesturinn enda er aldrei of snemmt að kynna sér áskoranirnar sem fylgja tækninýjungum og fá góð ráð um hvernig eigi að ræða þessi mál við börn og ungmenni. Fræðslan er í höndum Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, höfundar verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins.
Með bestu kveðju
Comments