Þér er boðið!
- helis6
- Mar 6, 2015
- 1 min read

Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, biðja þig að gera sér þá ánægju að vera við lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í sjöunda bekk
skólaárið 2014 - 2015. Okkur þætti vænt um að þú sæir þér fært að mæta á lokahátíð sem haldin verður
í Ólafsvíkurkirkju fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 18:00.
Gestir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Á hátíðinni munu nemendur í sjöunda bekk, sem valdir hafa verið úr skólum byggðarlagsins, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og aðrir ungir listamenn. Áætlað er að athöfnin standi í um tvær klukkustundir
með hléi.
Comentarios