top of page

Þér er boðið!

  • helis6
  • Mar 20, 2017
  • 1 min read

Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, bjóða þér að koma á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í sjöunda bekk grunnskóla Snæfellsness skólaárið 2016-2017. Okkur þætti vænt um ef þú sæir þér fært að mæta á lokahátíð sem haldin verður

í Stykkishólmskirkju þann 23. mars kl 18.

Gestir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Á hátíðinni munu nemendur í sjöunda bekk, sem valdir hafa verið úr skólum byggðarlaganna, lesa brot úr skáldverki og ljóði. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og aðrir ungir listamenn. Áætlað er að athöfnin standi í um tvær klukkustundir með hléi.

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga og grunnskólarnir á Snæfellsnesi


 
 
 

Comments


NÝJAR FRÉTTIR
Archive

VIÐBURÐIR

© 2014 Grunnskóli Grundarfjaðar

 

350 GRUNDARFJÖRÐUR

GRUNNSKÓLINN GRUNDARFJARÐAR

Borgarbraut 19

Sími - 430 8550

Netfang - grunnskoli(hja)gfb.is


 

TÓNLISTARSKÓLINN - 430 8560

ÍÞRÓTTAHÚS - 430 8564

 

bottom of page