Heimsókn frá Lions
- helis6
- Nov 30, 2017
- 1 min read
Meðlimir í Lionsklúbb Grundarfjarðar komu í heimsókn í skólann ásamt slökkviliðinu og afhentu 2. og 3. bekk litabók sem hefur þann tilgang að kenna börnum um brunavarnir heimilisins. Þessi mynd er af krökkunum í 3. bekk sem voru hress og kát með gjöfina svona í morgunsárið. Takk fyrir komuna.

Comments