top of page

Stóra upplestrarkeppnin

  • helis6
  • Mar 14, 2018
  • 1 min read

Á hverju skólaári taka nemendur í 7.bekk þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Markmið upplestrarkeppninnar í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju.

Þriðjudaginn 13. mars var haldin undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina hjá nemendum í 7.bekk Grunnskóla Grundarfjarðar. Hver nemandi las eina blaðsíðu úr bókinni „Blái hnötturinn“, eftir Andra Snæ Magnason, eitt ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og eitt ljóð sem nemendur völdu sjálfir. Í dómnefnd sátu Ásthildur Erlingsdóttir, Sigurlaug R. Sævarsdóttir og Þorsteinn Steinsson. Nemendur stóðu sig allir með stakri prýði en það voru þau Hermann Oddsson, Kolbrún Líf Jónsdóttir og Kristján Freyr Tómasson sem þóttu hlutskarpastar og til vara verður Hanna María Guðnadóttir. Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Ólafsvík, þriðjudaginn 10. apríl

nk. Fleiri myndir inni á myndasafni.


 
 
 

Comments


NÝJAR FRÉTTIR
Archive

VIÐBURÐIR

© 2014 Grunnskóli Grundarfjaðar

 

350 GRUNDARFJÖRÐUR

GRUNNSKÓLINN GRUNDARFJARÐAR

Borgarbraut 19

Sími - 430 8550

Netfang - grunnskoli(hja)gfb.is


 

TÓNLISTARSKÓLINN - 430 8560

ÍÞRÓTTAHÚS - 430 8564

 

bottom of page