Keppni um jólalegasta fatnaðinn
- helis6
- Dec 14, 2018
- 1 min read
Nemendaráð grunnskólans efndi til keppni um jólalegasta fatnaðinn sem fram fór í dag. Ánægjulegt var að sjá hversu margir tóku þátt, nemendur jafnt sem starfsmenn skólans. Nemendaráð valdi svo tvo nemendur sem unnu til verðlauna. Klara Dögg vann til verðlauna fyrir frumlegasta klæðnaðinn og Telma Dís fyrir jólalegasta klæðnaðinn. Óskum þeim til hamingju og þökkum nemendaráði fyrir skemmtilegt uppbrot. Fleiri myndir inni á myndaalbúmi.

コメント