Vel heppnaðir þemadagar og opið hús
- helis6
- Apr 12, 2019
- 1 min read

Nú er vel heppnaðri þemaviku lokið. Þema vikunnar var list í allri sinni mynd og unnu nemendur mörg fjölbreytt og áhugaverð verkefni. Til dæmis unnu nemendur ruslaskrímsli með því að endurnýta rusl að heiman, teiknuðu sjálfsmyndir, bjuggu til skákborð, unnu að fatahönnun, lærðu förðun á fjölbreyttan hátt, dönsuðu með Lisbet Rós, sömdu tónverk, tóku þátt í kökuskreytingakeppni, föndruðu páskaskraut og margt fleira. Þá fóru nemendur í öllum árgöngum í heimsókn til nokkurra listamanna bæjarins. Liston, Toggi í Lavalandi og Hrafnhildur í Krums tóku vel á móti nemendum. Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur. Á síðasta degi þemavikunnar héldu nemendur opið hús þar sem þeir sýndu foreldrum sínum og öðrum gestum afrakstur vikunnar. Árshátíð unglingastigs fór svo fram á fimmtudagskvöld. Þema árshátíðarinnar var Hollywood og salurinn skreyttur í samræmi við það. Foreldrar sáu um að elda og framreiða gómsætan mat ofan í nemendur og kennara og nemendur sáu sjálfir um skemmtiatriðin. Kvöldið heppnaðist mjög vel og nemendur fóru sáttir í háttinn.
Fleiri myndir inni á myndaalmbúmi.
Comments