Lausar stöður í Grunnskóla Grundarfjarðar
- helis6
- May 10, 2019
- 1 min read
Lausar stöður í Grunnskóla Grundarfjarðar
Grunnskólakennara vantar fyrir skólaárið 2019-2020 vegna orlofs til eins árs. Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara. Laun eru samkvæmt kjarasamningi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Staða er laus frá 1. ágúst 2019. Ráðið er í starfið óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað.
Meðal kennslugreina eru:
Íþróttir og sund
Danska
Valgreinar
List- og verkgreinar
Jafnvel aðrar greinar
Menntunar- og hæfnikröfur:
Leyfisbréf grunnskólakennara
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
Áhugi á starfi með börnum
Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2019. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri eða Björgvin Sigurbjörnsson, aðstoðarskólastjóri í síma 430-8550. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Comments