top of page

Lestrarhvatning á skólabókasafninu

Nú er allt farið á fullt á skólabókasafninu eftir sumarfrí. Frést hefur af stórhættulegum útlögum, vopnuðum allskyns teiknimyndasögum og álíka ... Við ætlum því að setja upp plaköt til heiðurs þeim með þeirri upphæð sem er sett til höfuðs þeim hverju sinni. Við hverja teiknimyndasögu sem lesin er bætast við 1000 $ við verðlaunaféð. Sá sigrar sem endar uppi sem stórhættulegasti teiknimyndasögu-lestrarhesturinn en úrslit verða tilkynnt 1. des. nk. Vörum okkur á teiknimyndasögufólkinu og munið, til að verjast árás er best að svara í sömu mynt, þ.e með teiknimyndasögum. Fyrsti útlaginn er kominn á vegginn en það er hún María Ósk en verðlaunaféð hennar stendur núna í 5000 $. Það er til nóg að teiknimyndasögum á skólabókasafninu og einnig í Sögumiðstöðinni hjá Sunnu. Eyðublöðin liggja hjá Lilju á skólabókasafninu sem heldur utan um hvern útlaga fyrir sig og hvað hann er að lesa. Verum útlagar, lesum teiknimyndasögur.


NÝJAR FRÉTTIR
Archive

VIÐBURÐIR

bottom of page